...

Jæja.. enn eini sunnudagurinn kominn, ég þoli þessa daga ekki, líklega af því að þá skiljast leiðir okkar Helga í sundur. 0

Hinsvegar var helgin fín, á föstudeginum fór ég til Helgu að horfa á Idol, Helgi kom svo að ná í mig um miðnætti og við brunuðum í bæinn og fórum fljótlega að sofa.. eða ég allavegana. Á laugardeginum skutlaði hann mér í kef Thx beibí :* og ég fór í ökutíma, gékk alveg sæmilega held ég bara, fyrir utan það að ég kann als ekki að bakka í stæði, ég þoli ekki að bakka!! Jááá svo þegar það var búið fór ég í kóósý bað, oh hvað er betra enn að liggja oní heitu baði, ein heima, hlusta á rólega tónlist og með kertaljós0 Haha.. væmin ég veit. 0 Mér finnst það allavegana ýkt afslappandi.. svo þegar líða tók á kvöldið fórum ég og Helgi að éta á Langbest.. (mmmm Begga 0 ) og svo fór ég heim að gera mig reddí fyrir kvöldið, Robbi og Sandra náðu svo í okkur og ferðinni var heitið í afmælispartý hjá Laufey og Valla (frændsystkinin hans Helga) .. djúsuðum þar þangað til fólk var orðið nokkuð ölvað, þá var haldið niðrí bæ og var H.inn fyrir valinu, dansað af sér allt vit þar og svo var ferðinni bara haldið heim að sofa.. frekar snemma, var orðin ógeð þreytt í endann og að drepast í löppunum!
Svo vöknuðum við snemma í morgun og fórum í 70 afmæli til ömmu hans Helga,maður gat nú alveg verið ferskari get ég sagt ykkur. 0 kom svo heim, lagðist uppí rúm og var aaaaaaalveg að sofna enn þá var komin maatur..oh ég elska eitt við sunnudaga, oftast svo gott í kvöldmatinn þá. 0
Svo fór Helgi minn bara heim *snökkt*
Enn jæja, ég held það sé komið gott um þessa blessuðu helgi sem var líka bara svona heeelvíti fín. 0

Ég er að fara í verklegaprófið á miðvikudaginn 0 vildi bara láta ykkur vita. 0

Enn tja.. býð ykkur bara góða nótt. 0

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

heh.. uss.. já Langbest.. all-svaðalegur staður.. besta sem ég hef smakkað!

hehe..

beggan (IP-tala skráð) 30.1.2006 kl. 08:00

2 identicon

Já hann er ágætur, hef samt fengið betra =)

Helgir (IP-tala skráð) 30.1.2006 kl. 14:25

3 identicon

þú kannt bara ekki gott að meta

beggan (IP-tala skráð) 31.1.2006 kl. 10:34

4 identicon

ó, okei begga veit allt.

Helgir (IP-tala skráð) 31.1.2006 kl. 11:00

5 identicon

obbosí.. :)

Helena (IP-tala skráð) 31.1.2006 kl. 11:17

6 identicon

gangi þér vel í dag skvís :)

Aldís Ósk (IP-tala skráð) 1.2.2006 kl. 06:49

7 identicon

Takk æðislega. :)

Helena (IP-tala skráð) 1.2.2006 kl. 10:50

8 identicon

jæja...hvernig gekk?

Aldís Ósk (IP-tala skráð) 1.2.2006 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og sautján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband